Jón Þór og Birgir Páll keppa í Prag
Jón Þór og Birgir Páll fóru til Prag í síðustu viku og kepptu þar á EJU junioramóti á laugardag og sunnudag. Jón Þór keppti í -73 kg flokki og Birgir í -81kg flokki. Því miður gekk ekki eins og við hefðum kosið en viðureignir þeirra fara í reynslubankann.
Jón tapaði fyrir Sven Marx (GER) á fastataki og Birgir fyrir Christoph Kronberger (AUT) á shimewasa.
Að loknu móti fara þeir í æfingabuðir í Nymburk ásamt Hermanni Unnarsyni og verða út þessa viku.
Hér er tengill á úrslitin. http://www.eujudo.com/result.php?group=354