Bikarkeppni U15 (11-14 ára)
Laugardaginn 7. febrúar verður fyrsti hluti af fjórum í Bikarkeppni JSÍ í aldursflokki U15.
Keppnin fer fram í húsakynnum JR í Ármúla 17a.
Vigtun á mótsstað frá 9:30 til 10:00 og keppnin hefst svo kl. 11:00 og lýkur um kl. 13:30
Tólf lið eru skráð til leiks og komast átta þeirra í aðra umferð sem verður 4. apríl.