Landsmót UMFÍ, það 26. í röðinni, verður haldið á Akureyri dagana 9. til 12. júlí í sumar.
Mótið verður sögulegt, því í ár eru liðin eitthundrað ár frá því að fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri.
Meðal keppnisgreina á mótinu verður júdó.
Júdó-keppnin verður laugardaginn 11. júlí.
Öll félög geta tekið þátt í mótinu.
Nánari upplýsingar um mótið verða sendar út síðar.