Sjö gull, þrjú silfur og 9 bronsverðlaun:
Til Danmörku fóru á föstudag tuttugu og fimm keppendur frá fimm félögum ásamt þremur þjálfurum og aðstoðarmönnum og kepptu þar á Hilleröd Intl. Þetta er alþjóðlegt mót fyrir yngri en 20 ára sem haldið hefur verið í fjölmörg ár og er jafnframt það fjölmennasta sem haldið er í Danmörku í þessum aldursflokki. Mótið sækja allar norðurlandaþjóðirnar auk þess sem þjóðverjar, pólverjar og fleiri evrópuþjóðir keppa þar. Keppendurnir okkar komu frá fimm félögum eins og áður sagði þ.e. Ármanni, ÍR, KA, JR og Grindavík og þjálfarar voru þeir Jóhann Másson úr JR, Jóhannes Haraldsson Grindavík og Víkingur Víkingsson aðstoðarlandsliðsþjálfari og auk þeirra voru nokkrir foreldrar með í för.
Keppendur kepptu í mismunandi aldurs og þyngdarflokkum eins og venja er en einnig eftir gráðunum, þ.e eftir beltum. Því miður varð að sameina ýmsa flokka svo einhverjir urðu að keppa í uppfyrir sig í aldri og stundum einnig með hærra gráðuðum einstaklingum eins og t.d. Daníela Daníelsdóttir sem átti að keppa í unglingaflokki 15 ára og yngri með appelsínugult belti en var látin keppa með 15-19 ára og hærra gráðuðum. Fleiri lentu í sviðuðum málum en krakkarnir létu það ekki á sig fá og glímdu feikilega vel og allmargar glímur unnust þó það dygði ekki til verðlauna.
Verðlaunahafar á Hilleröd Intl. 2009 | Þyngdarflokkur | Opinn flokkur Allir aldursflokkar | ||||||
2009 | Nafn | Félag | Gráða | Categories | Kg | Árangur | Árangur | |
1 | Sævar Róbertsson | JR | 1.kyu | A | Unglingar | -90 | Gull | Gull |
2 | Bergþór Jónsson | Júdódeild KA | 1.kyu | A | U 20 | -66 | Gull | Brons |
3 | Adam Þórarinsson | Júdódeild KA | 1.kyu | A | U 20 | -81 | Gull | Brons |
4 | Gísli Haraldsson | Júdódeild ÍR | 4.kyu | B | Unglingar | -60 | Gull | |
5 | Sigurpáll Albertsson | Grindavík | 4.kyu | B | Unglingar | -81 | Gull | |
6 | Björn Haraldsson | Grindavík | 2.kyu | A | Unglingar | -81 | Silfur | |
7 | Tómas Tómasson | Júdódeild Ármanns | 3.kyu | A | U 20 | -73 | Silfur | |
8 | Helga Hansdóttir | Júdódeild KA | 2.kyu | A | Unglingar | -57 | Brons | Gull |
9 | Marcin Ostrowski | Grindavík | 3.kyu | A | Börn | -40 | Brons | |
10 | Smári Stefánsson | Grindavík | 3.kyu | A | Börn | -50 | Brons | |
11 | Viðar Oddsson | JR | 1.kyu | A | Unglingar | -81 | Brons | |
12 | Guðmundur Kjartansson | Grindavík | 5.kyu | B | Unglingar | -81 | Brons | |
13 | Ingi Kristjánsson | JR | 1.kyu | A | U 20 | -73 | Brons | |
14 | Daníela Daníelsdóttir | JR | 4.kyu | B | Unglingar | + 70 | Silfur | |
15 | Ásdís Ólafsdóttir | Júdódeild ÍR | 2.kyu | A | Unglingar | -70 | Brons | |
Categorie A þýðir | 3.kyu (grænt belti) og hærri gráður | |||||||
Categorie B þýðir | 4.kyu (Appelsínugult belti) og lægri gráður |