Landsliðið heldur í dag á Smáþjóðaleikana í Liechtenstein. Keppt verður á þriðjudag í einstaklingskeppninni og á fimmtudag í liðakeppninni og munu fréttir birtast hér frá leikunum. Landsliðið sem valið var til keppni á leikunum er skipað eftirfarandi aðilum. -73 kg Ingi Þór Kristjánsson, -81 kg Hermann Unnarsson, -90 kg Birgir Páll Ómarsson, -100 kg Þorvaldur Blöndal, +100 kg Þormóður Árni Jónsson og -70 kg Anna Soffía Víkingsdóttir.