Seinni hluti vormóts JSÍ þ.e. keppni í seniora flokkum var haldið sl. helgi og voru keppendur þrjátíu og tveir frá átta klúbbum. Margar viðureignirnar voru hnífjafnar og úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu stundu en engin óvænt úrslit litu þó dagsins ljós og sigurvegararnir unnu langflestar viðureignir sínar á ippon. Ein leiðinda mistök voru gerð sem skrifast á undirritaðan en það gleymdist að breyta úr útsláttarfyrirkomulagi í riðlafyrirkomulag í -90 kg flokknum þegar fækaði um tvo keppendur þar sem þeir mættu ekki til leiks og eru keppendur beðnir afsökunnar á því en hér eru úrslitin.