Landsliðsæfingarnar sem haldnar eru í JR á föstudögum kl 18:30-20:30 og eru fyrst og fremst randori æfingar, eru opnar öllum iðkendum fimmtán ára og eldri. Það styttist í Haustmótið sem haldið verður á Selfossi en það er eitt af fjórum punktamótum JSÍ og gera landsliðsþjálfarar þá kröfu að landsliðsfólk og verðandi landsliðsfólk taki þátt í þeim mótum en þau eru, Haustmót, RIG, Íslandsmót og Vormót.