Egill Blöndal (-90 kg) og Sveinbjörn Iura (-81 kg) eru komnir til Skotlands ásamt Jóni Þór Þórarinssyni landsliðsþjálfara og þar munu þeir taka þátt í European Judo Open í Glasgow þann 7. okt. Búið er að draga og sitja þeir báðir hjá í fyrstu umferð. Eftir góðan árangur á heimsmeistaramótunu í september þá flugu þeir upp heimslistann svo um munaði og eru komnir í 110 og 112 sæti. Vegna þessa þá er þeim forraðað á þessu móti, hvor í sínum flokki en það er gert við átta efstu menn heimslistans sem eru á meðal þátttakenda. Sveinbjörn mætir annaðhvort Svía eða Spánverja en Egill mætir Frakka. Keppnin hefst kl. 9 að Íslenskum tíma og glíma þeir báðir fljótlega upp úr því. Hér er drátturinn, hér er keppnisröðin og hér neðar eru tenglar þar sem hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu.