Samkomubann hefur verið sett á hérlendis vegna kórónuveirunnar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra efndi til í Ráðherrabústaðnum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra greindi því á fundinum að sóttvarnalæknir hefði sent heilbrigðisráðherra tillögu um samkomubann. Engin fordæmi væru fyrir slíku í lýðveldissögu Íslands.
Að svo stöddu er fyrirætlað að bannið standi frá 16. mars til 13. apríl. Mun Júdosamband Íslands fresta öllum mótum sem eiga fara fram á þessu tímabili. Nýjar tímasetningar móta verða tilkynntar seinna.
Varðandi júdóæfingar á Íslandi þá biður JSÍ öll sín aðildarfélög að lúta fyrirmælum sóttvarnarlæknis og almannavarna. Hér má finna allar nánari upplýsingar um Covid-19 og samkomubannið. Sömu reglur gilda um æfingar íþróttafélaga og um skólahald.