Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsóknum
vegna sértækra aðgerða til og með föstudagsins 19. júní n.k.
Hér neðar er tengill með upplýsingum um þau gögn sem fylgja þarf umsókn og í
viðhengi er umsóknareyðublað.
_Þeir aðilar sem geta sótt um í sértækar aðgerðir eru
sérsambönd, héraðs- og íþróttabandalög, íþróttafélög með
aðild að ÍSÍ og UMFÍ og deildir innan íþróttafélaga.
Umsækjendur eru þeir sem orðið hafa fyrir tekjutapi vegna viðburða
eða móta sem ákveðið hefur verið að fella niður eða breyta
verulega vegna samkomubanns af völdum COVID-19 og hægt er að sýna
fram á að hafi veruleg áhrif á rekstur og starf viðkomandi
íþróttaeiningar.
* Umsókn þarf að vera staðfest af meirihluta stjórnar viðkomandi
einingar, þó aldrei færri en tveir aðilar. Þá þarf umsókn frá
deild einstaka íþróttafélags að vera með samþykki aðalstjórnar
félagsins.
* Umsókn þarf að fylgja stutt greinagerð þar sem gerð er grein
fyrir nettó tekjutapi vegna viðburðar. Nettótekjutap þýðir að
einnig þarf að gera grein fyrir áætluðum kostnaði vegna
viðburðar sem ekki kemur til greiðslu.
* Leggja þarf fram samþykkta fjárhagsáætlun fyrir 2020 þar sem
gerð er grein fyrir áætluðum hagnaði af viðburði.
* Leggja þarf fram endurskoðaða ársreikninga og uppgjör
viðburðar síðustu tveggja ára, sem sýna tekjur af sambærilegum
eða samskonar viðburðum og sótt er um stuðning vegna tekjutaps.
* Þá þarf að fylgja með umsókn staðfesting
endurskoðanda/skoðunarmanni reikninga að upplýsingar umsóknar séu
í samræmi við ársreikninga.
* Gera þarf grein fyrir í umsókn hvaða áhrif tekjutap viðburðar
hefur haft á umsækjanda og hvernig brugðist hefur verið við til að
lágmarka tjón.
* Gera þarf grein fyrir öðrum stuðningi sem sótt er um vegna
stöðunnar s.s. frá aðalstjórn félags, sérsambandi, sveitarfélagi
og ríkisvaldi.
Tengillinn er eftirfarandi:
https://isi.is/um-isi/umsokn-vegna-covid-19/ [1]