Dagana 14-16 ágúst verða æfingabúðir á vegum JSÍ á Hellu. Æfingabúðirnar eru liður í undirbúningi fyrir Norðurlandamótið sem fram fer í Reykjavík í September og eru ætlaðar fyrir iðkenndur í U18 U21 og seniora flokkum. Eldri júdómenn eru einnig hjartanlega velkomnir. Æfingar munu fara fram í íþróttahúsinu á Hellu og mun South door á Hellu annast gistingu.
Gisting er í boði JSÍ fyrir þátttakendur.
Æfingaáætlun (gæti mögulega tekið minniháttar breytingum)
Föstudagur 14. ágúst
18:30-20 Júdóæfing
Laugardagur 15. Ágúst
09:30-11:30 Júdóæfing
16:00-18:00 Júdóæfing
Sunnudagur 16. ágúst
09:30-11:30 Júdóæfing
14:00-16:00 Júdóæfing
Skráningarfrestur er 10. í Ágúst og fer skráning fram í gegnum jsi@jsi.is
Nánari upplýsingar verða birtar á JSI.is . Senda má fyrirspurnir á jsi@jsi.is