Hraðvaxandi fjölgun COVID-19 smita í samfélaginu undanfarna daga hefur nú haft þær afleiðingar að stjórnvöld hafa neyðst til að herða sóttvarnir og setja á ný takmarkanir á samkomur. Vonast er til að hertar reglur séu til skamms tíma á meðan verið er að ná tökum á fjölgun smita. Sóttvarnarreglur JSÍ hafa verið uppfærðar samkvæmt nýrri reglurgerð heilbrigðisráðherra og nálgast má reglurnar í hér í helkknum að neðan.
Uppfærðar sóttvarnarreglur JSÍ frá 26. júlí 2021
Helstu takmarkanirnar sem viðkoma íþróttastarfinu í landinu eru eftirfarandi:
- Almennar fjöldatakmarkanir verða 200 manns. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin.
- Nándarregla verður almennt 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar verði undanþegin.
- Grímuskylda verður tekin upp innanhúss og þar sem ekki er unnt að viðhafa 1 metra reglu. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin.
- Heilsu- og líkamsræktarstöðvum sem og sund- og baðstöðum verður heimilt að hafa opið fyrir 75% af hámarksfjölda leyfilegra gesta. Sameiginlegan búnað skal sótthreinsa milli notenda.
- Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna heimilar með og án snertinga. Hámarksfjöldi þeirra sem fæddir eru 2005 og fyrr verður 100 manns í rými. Hámarksfjöldi áhorfenda verður 200 manns í rými sem skulu skráðir í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri. Mögulegt er að hafa fleiri en eitt rými, þ.e. með sérinngangi fyrir hvert rými og að komið sé í veg fyrir blöndun fyrir og eftir viðburð. Veitingasala óheimil á keppnisstöðum.
Frétt á vef heilbrigðisráðuneytis.
Reglugerð heilbrigðisráðherra sem gildir frá 25. júlí 2021.
Minnisblað sóttvarnalæknis 22. júlí 2021.