Dagana 24-26 september verða æfingabúðir á vegum JSÍ á Hellu. Æfingabúðirnar munu saman standa af randori og sértækum þrekæfingum fyrir judo. Æfingabúðirnar eru ætlaðar fyrir iðkenndur í U18 U21 og seniora flokkum. Eldri judomenn eru einnig hjartanlega velkomnir.
Gist er í Árhúsum á Hellu og er gisting í boði JSÍ fyrir þátttakendur og er morgunmatur innifalinn í gistingu.
Æfingar fara fram í íþróttamiðstöð Hellu
Bornar verða fram veitingar á veitingastað Árhúsa
Hver og einn sér um að koma sér til og frá staðnum svo menn ættu að tala saman og sameinast í bílum. Mikilvægt er að þátttakendur hafi meðferðis minnst tvo hreina judobúninga.
Skráningafrestur er 17. september. og skal senda inn skráningu á jsi@jsi.is
Dagskrá
Föstudagur 24. september
16:00-19:00 Mæting
19:00-20:30 Judoæfing
21:00 – 22:00 Kvöldmatur, verð 2400 kr
Laugardagur 25. september
07:00-09-00 Morgunmatur
09:30-11:30 Judoæfing
12:00-13.00 Hádegismatur, verð 2400kr
17:00-19:00 Judoæfing
19:30-21:00 Kvöldmatur, verð 3400kr.
21:00 Kvöldvaka (fundarsal Árhúsa)
Sunnudagur 27. september
09:30-11:30 Judoæfing
12:00-13:00 Hádegismatur, verð 2400kr
14:00-16:00 Judoæfing
Senda má fyrirspurnir á jsi@jsi.is