Gunnar Jóhannesson (UMFG) og Þormóður Jónsson (JR) þreyttu nú nýverið gráðupróf fyrir 4. dan og voru þeir uke hjá hvor öðrum. Katan fyrir 4. dan er Kime No Kata og er hún byggð upp af átta brögðum í krjúpandi stöðu og tólf í standandi stöðu og sýnir vörn og gagnsókn og er notkun hnífs og sverðs í hluta hennar. Stóðust þeir báðir prófið með ágætum.
Hér er mynd af þeim félögum að lokinni gráðun.