Í dag tekur gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem mun gilda til og með 8. desember. Sóttvarnarreglur JSÍ hafa verið uppfærðar í samræmi við nýja reglugerð og má nálgast reglurnar hér að neðan.
Sóttvarnarreglur JSÍ 10.11.2021
Hér að neðan má sjá helstu breytingar sem ný reglugerð felur í sér.
Æfingar og keppnir:
- Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 2.000 í 500 manns og heimilt verður að hafa allt að 500 manns á æfingum og í keppnum.
- Sem fyrr skal sótthreinsa áhöld og aðra sameiginlega snertifleti milli hópa.
- Engin blöndun má vera milli hópa ef skipt er upp í hólf vegna fjöldatakmarkana.
- Börn fædd 2006 og fyrr eru undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.
Áhorfendasvæðin:
- Heimilt verður að hafa allt að 500 manns í hólfi í áhorfendasvæðum en allt að 1500 manns í hólfi þar sem krafist verður hraðprófa (sem má ekki vera eldra en 48 klst.).
- Skráningarskylda verður tekin upp á ný og skylt að skrá áhorfendur með nafni, símanúmeri og kennitölu, hvort sem hraðpróf eru notuð eða ekki.
- Grímuskylda gildir í áhorfendasvæðum hvort sem hraðpróf eru notuð eða ekki.
- Almennt er 1 metra regla í gildi í samfélaginu en þrátt fyrir það verður heimilt að sitja í hverju sæti í áhorfendasvæðum, að því gefnu að önnur skilyrði séu uppfyllt (grímuskylda og skráningarskylda).
- Börn fædd 2006 og fyrr eru undanþegin grímuskyldu, fjölda- og nálægðartakmörkunum.
Heilbrigðisyfirvöld hvetja alla til þess að nota hraðpróf reglulega, bæði á viðburðum og í sínu daglega lífi.
Að lokum vill Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands minna alla á mikilvægi þess að gæta vel að persónubundnum sóttvörnum.
Reglugerð heilbrigðisráðherra sem tekur gildi þann 10. nóvember.
Frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.