Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir. Er fyrirhugaður gildistími 23. desember – 2. febrúar nema annað verði tilgreint.
Sóttvarnar reglur JSÍ hafa verið uppfærðar í samræmi við nýja reglugerð og má sjá þær hér að neðan.
Sóttvarnarreglur JSÍ 22.12.2021
Eftirfarandi eru helstu atriði er snerta íþróttahreyfinguna:
Helstu reglur í íþróttunum eru eftirfarandi:
- 50 manna takmörk á æfingum og í keppni
- 50 manna takmörk í áhorfendasvæðum þar sem hraðpróf eru ekki notuð en þó að uppfylltum ákveðnum skilyrðum
200 manna takmörk í áhorfendasvæðum þar sem hraðpróf eru notuð að uppfylltum fleiri skilyrðum.
Til upplýsingar:Frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins.
Reglugerð heilbrigðisráðherra birt þann 21.desember.
Minnisblað sóttvarnalæknis frá 20. desember