Fyrra Kyu mót JSÍ verður haldið að venju hjá ÍR.
Mótið verður laugardaginn 20. Febrúar og hefst kl. 10.
Vigtun verður á ábyrgð klúbbanna sjálfra en ef ástæða þykir til að ætla að þyngd keppenda standist ekki verða þeir vigtaðir aftur áður en keppni hefst. Leyft er frávik upp á 500 gr. í aldursflokkum 11-14 ára.
Dómaranámskeið verður kl. 20:00 í ÍR heimilinu kvöldið fyrir keppni (föstudagur 19.feb.) og eru þátttakendur á það beðnir um að skrá sig á sérstaka þátttökutilkynningu sem fylgir excel skjalinu.
Lokadagur skráningar er mánudagurinn 15. Feb.