Dagana 25-27 september verða æfingabúðir á vegum JSÍ á Hellu. Æfingabúðirnar munu saman standa af hefðbundnum randori og þrekæfingum. Jafnframt er hluti af æfingabúðunum vinnustofa sem Íþróttasálfræðingur fagteymis JSÍ mun stýra. Þar sem farið verður í andlegan undirbúning keppenda og þjálfara. Æfingabúðirnar eru ætlaðar fyrir iðkenndur í U18 U21 og seniora flokkum. Eldri judomenn eru einnig hjartanlega velkomnir.
Gist er í Árhúsum á Hellu og er gisting í boði JSÍ fyrir þátttakendur og er morgunmatur innifalinn í gistingu.
Æfingar fara fram í íþróttamiðstöð Hellu
Bornar verða fram veitingar á veitingastað Árhúsa
Hver og einn sér um að koma sér til og frá staðnum svo menn ættu að tala saman og sameinast í bílum. Mikilvægt er að þátttakendur hafi meðferðis minnst tvo hreina júdóbúninga.
Dagskrá
Föstudagur 25. september
16:00-19:00 Mæting
19:00-20:30 Judoæfing
21:00 – 22:00 Kvöldmatur, Hamborgarar og pítsur, verð 1900 kr
Laugardagur 26. september
07:00-09-00 Morgunmatur
09:30-11:30 Judoæfing
12:00-13.00 Hádegismatur, Lasagna, verð 1900kr
14:00-16:00 Vinnustofa með Íþróttasálfræðingi (fundarsal Árhúsa)
17:00-19:00 Judoæfing
19:30-21:00 Kvöldmatur Lambalæri og meðlæti, verð 2900kr.
21:00 Kvöldvaka (fundarsal Árhúsa)
Sunnudagur 27. september
09:30-11:30 Judoæfing
12:00-13:00 Hádegismatur, Kjúklingaleggir og franskar, verð 1900kr
14:00-16:00 Judoæfing
Senda má fyrirspurnir á jsi@jsi.is